Veitingastaður í hjarta Akureyrar
-
Aurora restaurant - fyrir notalegar stundir
Staðurinn er hlýlegur og ljósmynd af tignarlegum norðurljósum yfir Súlum setur mikinn svip á rýmið og eldstæði prýðir einnig staðinn sem eykur á kósýheitin. Fjölbreyttur matseðillinn samanstendur af einföldum, ljúffengum réttum. Barsnarlið er á sínum stað sem og hin einstaka síðdegishressing að hætti Aurora.
Einstakur staður fyrir notalegar stundir.
Barseðilinn er framreiddur frá kl 12:00- 21:00.
Kvöldverðarseðil er framreiddur frá kl 18:00-21:00.
Barinn er opinn frá kl 12:00- 24:00